
Þetta nútímalíf
Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag.
Áttu í ofbeldissambandi við snjallsímann? Flest viljum við verja minni tíma í símanum en gengur það upp í nútímasamfélagi að losa sig við hann? Geta foreldrar ungra barna skipt yfir í takkasíma? Í þættinum kynnumst við fólki sem hefur sagt skilið við snjallsímann. Við rýnum í samfélagsleg áhrif snjallsímans, hugmyndir og andóf en líka tísku og nostalgíu ungs fólks fyrir árunum í kringum 2000.
Viðmælendur í þættinum eru Ágúst Elí Ásgeirsson, nemi í ritlist við Háskóla Íslands, Kristjana Ellen Úlfarsdóttir, nemi í íslensku við sama skóla, Magnea Steiney Þórðardóttir, félagsráðgjafi og kennari, Ármann Elías Jónsson, uppeldis og menntunarfræðingur og Brynjólfur Þór Guðmundsson, starfsmaður Elko.

Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag.