Ég veit alltaf hvar þú ert!
Sífellt fleiri fylgjast með staðsetningu fjölskyldumeðlima sinna í rauntíma í gegnum öpp á borð við Life 360. Börn fylgjast með foreldrum og foreldrar með börnum, fólk rekur ferðir…
Krakkarnir sem mótmæltu aðgerðaleysi í loftslagsmálum á Austurvelli vikum, mánuðum, jafnvel árum saman eru orðnir fullorðnir. Hvaða augum líta þau þátttöku sína í Loftslagsverkfallinu nú? Sjá þau eftir einhverju? Í þættinum skoðum við loftslagsverkföllin á Íslandi í baksýnisspeglinum og heyrum sögur þeirra Idu Karolinu Harris og Egils Hermannssonar sem bæði tóku virkan þátt í umhverfishreyfingunni og loftslagsverkföllum á vegum Föstudaga fyrir framtíðina. Þetta er saga af hlýnun jarðar og kulnun mótmælahreyfingar.
Í þættinum er einnig rætt við Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands.

Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag.