Þetta nútímalíf

Ég veit alltaf hvar þú ert!

Sífellt fleiri fylgjast með staðsetningu fjölskyldumeðlima sinna í rauntíma í gegnum öpp á borð við Life 360. Börn fylgjast með foreldrum og foreldrar með börnum, fólk rekur ferðir náinna ættingja eða vina, jafnvel ókunnugs fólks. Hvaða áhrif hefur þessi þróun á okkur og samskipti okkar hvert við annað? Er vöktunin praktísk, jafnvel nauðsynleg í hættulegum heimi eða erum við að verða hálfgerðir eltihrellar?

Í þættinum prófar Arnhildur Hálfdánardóttir, þáttastjórnandi Þessa nútímalífs, appið og ræðir við Írisi Ósk Ólafsdóttur, fjölskyldufræðing og réttarfélagsráðgjafa, Bergþóru Hildi Andradóttur og Svandísi Birgisdóttur, jafningjafræðara hjá Hinu húsinu og Helgu Sigríði Þórhallsdóttur, sviðsstjóra Alþjóða- og fræðslusviðs Persónuverndar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Þetta nútímalíf

Arnhildur Hálfdánardóttir fjallar um mennskuna og rótar í hversdeginum eftir sannleikskornum um hver við erum í dag.

Þættir

,