Spegillinn

Nýtt frumvarp um orkumál, virkjanir og raforkuflutninga, öryggimál og Úkraína

Í gær birtist í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp frá Jóhanni Páli Jóhannssyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Það er mjög ítarlegt - með því eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum og þvi er ætlað að flýta fyrir uppbyggingu á raforkuinnviðum, einfalda leyfisveitingar og ýmislegt fleira. Rúnar Pálmason ræddi við Jóhann Pál um frumvarpið og við Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formann Landverndar.

Fari svo að Evrópa eða Evrópusambandið verði beinn þátttakandi í viðræðum um frið í Evrópu - hver eða hverjir gætu verið í forsvari? Og - hvað eiga rússnesk stjórnvöld við, þegar þau vilja tala um nýja uppbyggingu á öryggismálum í Evrópu, samhliða því að tala um Úkraínu? Björn Malmquist leitaði svara.

Umsjón: Rúnar Pálmason

Tæknimaður: Mark Eldred

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,