• 00:00:04Íbúðir sem hvorki seljast né leigjast
  • 00:06:41Rjúpnaveiðin að hefjast
  • 00:12:51Bólusetningar - lömunarveiki

Spegillinn

Leigumarkaðurinn, rjúpnaveiði og bólusetningar

Fasteignamarkaðurinn er með dauflegasta móti. Í mörgum tilfellum eru nýjar íbúðir sem ekki seljast boðnar til leigu - en vandinn er að þær henta ekki allar leigumarkaðnum sérlega vel. Rúnar Pálmason ræðir við VIgni Má Lýðsson, stofnanda og framkvæmdastjóra leigumiðlunarinnar Igloo.

Rjúpnaveiðitímabilið hefst á morgun og bjartsýni ríkir meðal veiðimanna enda hefur rjúpnastofninn ekki verið sterkari í áratugi - rjúpnaveiðimönnum hefur aftur á móti fækkað mikið í gegnum árin. Ágúst Ólafsson talar við Áka Ármann Jónsson, formann Skotvís.

Með bóluefnum og bólusetningu hefur sjúkdómum á borð við bólusótt verið útrýmt og í augsýn er að lömunarveiki fari sömu leið, segir Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómum við Háskóla Íslands í viðtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Bólusetning, til dæmis gegn flensu og kóvid, geti haft áhrif til varnar fleiri sjúkdómum en þeim sem bólusett er við.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,