Fylgi flokka og skipulögð brotastarfsemi
Fylgi flestra flokka er á svipuðum nótum í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallups og var í síðustu könnun en Miðflokkurinn bætir mestu við sig, tveimur prósentum milli kannana, fær rúm 17% og…
Fjármálaráðherra lagði fram hallalaus fjárlög þegar þing kom saman, tekjurnar sem þar var gengið út frá hafa þegar skerst um einn og hálfan milljarð vegna aðgerða stjórnarinnar til að stuðla að kjarasamningum og rekstrargatið sem blasir við Landspítalanum á næsta ári er upp á um tvo milljarða.
Og það vantar víðar fé; til að ljúka fjármögnun á nýjum björgunarskipum Landsbjargar vantar um einn og hálfan milljarð.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.