• 00:00:00Upphaf
  • 00:00:23Skýrsla loftslagsráðs
  • 00:13:15Hvaða félag er Ljósleiðarinn?
  • 00:19:30Kveðja

Spegillinn

Mótvægisaðgerðir vegna loftslagsmála, fyrirhuguð sala á Ljósleiðaranum

„Víðtækur skilningur virðist ríkja á þeim hættum sem loftslagsbreytingar fela í sér, þótt aðgerðir skorti.“ Þetta er lykilsetning í nýútkomnu mati loftslagsráðs á skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða um stöðu mótvægis- og aðlögunaragerða í loftslagsmálum. Ævar Örn Jósepsson ræddi við Halldór Þorgeirsson, formann loftslagsráðs um mótvægis- og aðlögunaragerðir hér á landi í loftslagsmálum.

Hluthafafundur Ljósleiðarans samþykkti í síðasta mánuði að veita umboð til aðgerða sem geta leitt til breytinga á eignarhaldi félagsins. Hámarka á verðmæti Ljósleiðarans fyrir eigendur, hvort sem niðurstaðan verði að Orkuveitan eigi félagið áfram, nýir eigendur eignist það að hluta eða í heild eða að það verði skráð á markað. En hvaða félag er Ljósleiðarinn og hvernig gengur reksturinn? Rúnar Pálmason ræddi um það við Þuríði Björg Guðnadóttur, framkvæmdastýru Ljósleiðarans.

Umsjón: Rúnar Pálmason

Tæknimaður: Mark Eldred

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Spegillinn

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Þættir

,