
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Jörðin mun óhjákvæmilega hafa hlýnað um meira en 1,5 gráður áður en þessari öld lýkur, þar sem ríki heims hafa einfaldlega dregið of lítið úr losun gróðuhúsalofttegunda til að hægt sé að forðast það úr þessu. Þetta kemur fram í nýjustu skýrslu umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna um bilið á milli loftslagsmarkmiða og raunverulegs árangurs. Með róttækum og skjótum aðgerðum á næstu 15 árum megi þó takmarka hlýnunina við eina komma sjö til eina komma átta gráður. Elín Björk Jónasdóttir, sérfræðingur í loftslagsmálum segir ekki útilokað að þetta takist, þrátt fyrir að notkun jarðefnaeldsneytis sé enn að aukast og losun minnki ekki að neinu ráð.
Aðeins eitt land í heimunum, Sviss, nær enn að halda stýrivöxtum sínum í núlli, þar eru húsnæðislánin á eitt til tvö prósent vöxtum, verðbólga í 0.8 prósentum og jafnvel virðisaukaskatturinn óvenju lágur miðað við nágranna þess í Evrópu eða í 8.1 prósenti sem er þriðjungur af því sem innheimt er á Íslandi. Jón Björgvinsson kannar ástæður þessa.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.