
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fylgi flestra flokka er á svipuðum nótum í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallups og var í síðustu könnun en Miðflokkurinn bætir mestu við sig, tveimur prósentum milli kannana, fær rúm 17% og er þriðji stærsti flokkurinn. Samfylkingin sem er stærst með 29%, tapar um prósenti milli kannana, Sjálfstæðisflokkurinn stendur nánast í stað með 25% og fylgi annarra flokka breytist líka lítið sem ekkert,
Anna Kristín Jónsdóttir fékk Viktor Orra Valgarðsson doktor í stjórnmálafræði til að rýna í stöðuna.
Skipulögð brotastarfsemi þar sem erlend glæpagengi koma mjög við sögu er fyrirferðarmikil í löggæsluáætlun til næstu fimm ára, sem dómsmálaráðuneytið birti í liðinni viku. Stefán Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum er sérfróður um þennan málaflokk. Hann segir umfang þessarar brotastarfsemi mikla, hér sem annars staðar, en skipulögð glæpastarfsemi er talin einhver mesta ógn sem steðjar að vestrænum samfélögum. Ævar Örn Jósepsson talar við hann.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Kári Guðmundsson

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.