
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Veltan í íslensku kauphöllinni hefur ekki verið minni og viðskipti ekki verið færri frá árinu 2020. Ávöxtunin hefur heldur ekki verið upp á marga fiska, svona almennt séð og OMX 15-vísitalan sem mælir gengi á bréfum 15 stærstu félaganna, lækkað um 11 prósent það sem af er ári. Rúnar Pálmason þýfgaði Magnús Harðarson, forstjóra kauphallarinnar, um ástæður þessa og horfurnar.
Mikla eftirspurn eftir mjólkurkvóta má rekja til þess að færri yfirgefa greinina, að mati kúabónda. Vatnaskil urðu í mjólkurframleiðslu þegar gömlu básafjósin voru bönnuð fyrir rúmum tíu árum. Á aðlögunartímanum sem á eftir fylgdi fækkaði kúabúum mikið en bú þeirra sem uppfærðu í ný fjós stækkuðu fyrir vikið. Mjólkurbóndi segir jafnvægi að komast á geirann en fjármagnskostnaður sé töluverður hluti af útgjöldum bænda.
Gréta Sigríður Einarsdóttir forvitnaðist um þetta og ræddi við þau Atla Má Traustason og Sigurbjörgu Ottesen.
Ísbjörninn er mögulega sú dýrategund sem hvað oftast er nefnd - og fjallað um - í tengslum við yfirstandandi loftslagshamfarir og afleiðingar þeirra, enda hvítabirnir miklar og tignarlegar skepnur þar á ferð, sem augljóslega verða illilega fyrir barðinu á þeim. Sérstakur stofn á suðausturodda Grænlands er þó undantekning þar á og hefur aðlagað sig breyttum heimi.
Ævar Örn Jósepsson skoðaði málið.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.