Nýr forseti ASÍ, smábátasjómenn í ólgusjó
Georg Páll Skúlason var í dag kjörinn forseti Alþýðusambandsins. Við ræðum við hann um deilurnar innan ASÍ, helstu verkefni, stefnu, gagnrýni á framgöngu seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra…
Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir fimm milljarða afgangi í fjárlagafrumvarpinu. Það á eftir að fara í gegnum þingið hver verður niðurstaðan eftir það. Rætt við Sigurjón Þórðarson (F) formann fjárlaganefndar og Njál Trausta Friðbertsson (D) sem situr í henni.
Þing-, landsþings- og sveitarstjórnarkosningar eru í Svíþjóð 13.september. Skoðanakannanir benda til þess að mjótt verði á mununum milli núverandi ríkisstjórnarflokka og stjórnarandstöðunnar. Rætt við Anders Svenson sænskan blaðamanna um horfurnar.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.