Gagnaver og verkjalyf við ástarsorg
Það lætur hátt í tölvunum í gagnaveri AtNorth í Reykjanesbæ, þær knýja gervigreind fyrir erlendan viðskiptavin. Búnaður verann er dýr og eftirlitið mikið við verið.
Spegillinn rýndi í þingmálaskránna nýju og skoðaði hvað ráðherrar ríkisstjórnarinnar ætla að setja á dagskrá í vetur. Á skránni eru 217 mál. Þetta eru frumvörp, tillögur og skýrslur. Sum eru endurflutt, önnur eru ný af nálinni. Fjármálaráðherra er með flest, forsætisráðherra fæst. Og það er ekki þannig að þetta séu málin sem ríkisstjórnarflokkarnir eru sammála um.
Við segjum frá nýrri rannsókn sem hrekur þær staðhæfingar að Íslendingar og íbúar á meginlandi Evrópu hafi látist af völdum gosmóðu eftir Skaftárelda.

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.