Í þættinum í dag ætlum við ekki að fræðast um hlut heldur dýrategund. Hvalir eru stórmerkilegir eins og við fáum að kynanst í dag. Hvernig þróuðust þeir frá landdýrum yfir í sjávardýr? Hvernig eiga þeir samskipti? Eru þeir með raddbönd? Syngja þeir?
Séfræðingur þáttarins er: Edda Elísabet Magnúsdóttir.
Sérstaklega fræðandi þáttur í dag um hvali sem eru kannski líkari okkur mönnunum en við höldum.
Þáttur fyrir forvitna krakka og aðra fjölskyldumeðlimi. Sigyn Blöndal segir frá uppfinningum og algengum hlutum í umhverfi okkar á upplýsandi hátt.