Þessa dagana er alþjóðleg fjármálalæsisvika. Við hjá KrakkaRúv tökum þátt í þessu flotta verkefni svo í dag ætlum við að fá að vita ýmislegt um peninga. Hvaðan koma þeir og hver er saga þeirra? Hvað er mynt? Hvernig var fyrsti seðillinn? Hver prentar seðlana? Hver ákveður hvaða fólk er á peningunum? Hafa einhverntímann verið myndir af krökkum á peningum?
Þetta og ýmislegt fleira spennandi og skemmtilegt um peninga.
Sérfræðingur þáttarins er: Sigurður Helgi Pálmason
Frumflutt
2. mars 2016
Aðgengilegt til
27. maí 2024
Saga hlutanna
Þáttur fyrir forvitna krakka og aðra fjölskyldumeðlimi. Sigyn Blöndal segir frá uppfinningum og algengum hlutum í umhverfi okkar á upplýsandi hátt.