Óperudagar 2026

Portrett: Kurt Weill

Söngkonurnar Sigríður Thorlacius og Hildigunnur Einarsdóttir, ásamt 12 manna hljómsveit, flytja tónlist eftir Kurt Weill í nýjum útsetningum Þórðar Magnússonar í hljóðritun frá tónleikum í Norðurljósum, Hörpu 30. október.

Útsetningarnar voru sérstaklega gerðar fyrir söngkonurnar og hljómsveitina og skapa litríkan og kraftmikinn hljóðheim þar sem klassík og jazz mætast og tónlistin fær að njóta sín í allri sinni leikrænu breidd. Lögin eru sungin á þýsku, ensku, frönsku og íslensku og endurspegla þann ótrúlega fjölbreytileika sem einkenndi feril Weills beggja vegna Atlantshafsins.

Kurt Weill er eitt áhrifamesta og sérkennilegasta tónskáld 20. aldar – tónskáld sem samdi óperu-, leikhúss-, kabarett- jazz- og dægurtónlist. Tónlist hans getur verið seiðandi og fáguð á einu augnabliki, hrá, beitt og ögrandi því næsta. Frá iðandi kabarettheimi Berlínar millistríðsáranna til leikhúsa Parísar og Broadway í New York skapaði Weill tónlistarheim þar sem mörkin milli klassíkur og dægurtónlistar verða óljós.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Óperudagar 2026

Upptökur frá Óperudögum í Hörpu.

Þættir

,