
Óperudagar 2026
Upptökur frá Óperudögum í Hörpu.
Kastali Bláskeggs, ópera eftir Béla Bartók í útsetningu Stephens Higgins fyrir kammersveit. Hljóðritun frá flutningi óperunnar í Norðurljósum, Hörpu, 30. október á Óperudögum 2026, en hér var um frumflutning verksins á Íslandi að ræða.
Einsöngvarar: Guja Sandholt, sópran, í hlutverki Judithar og Andri Björn Róbertsson, bassa-barítón, í hlutverki Bláskeggs.
Stjórnandi: Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir.
Kastali Bláskeggs fjallar meðal annars um ást, nánd og sannleika. Hversu vel getum við raunverulega þekkt aðra manneskju – og hversu mikinn sannleika þolir ástin?
Judith fylgir nýja eiginmanni sínum, Bláskeggi, inn í myrkan og drungalegan kastala hans þar sem finna má sjö læstar dyr. Judith vill kynnast manninum sem hún elskar og krefst þess að fá lyklana að öllum dyrunum. Þrátt fyrir viðvaranir Bláskeggs opnar hún þær allar, eina af annarri. Við hverjar dyr uppgötvar hún nýja hlið á honum og fortíð hans. Það sem í fyrstu virðist vera leit Judithar að sannleikanum verður smám saman að einhverju óumflýjanlegu: hún getur ekki hætt fyrr en allar dyrnar hafa verið opnaðar. Bak við dyrnar birtist bæði myrkur og ljós; hryllingur og fegurð. Eftir því sem Judith kemst lengra inn í kastalann verður spurningin áleitnari: Hversu langt eigum við að ganga í leitinni að sannleikanum um manneskjuna sem við elskum?
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Upptökur frá Óperudögum í Hörpu.