Óperudagar 2026

Þunnt skæni á logandi vök

Kammeróperan Þunnt skæni á logandi vök eftir Hildigunni Rúnarsdóttur við ljóð Magneu J. Matthíasdóttur í hljóðritun frá tónleikum sem fram fóru í Norðurljósum, Hörpu, 31. október.

Einsöngvari er Hallveig Rúnarsdóttir sópran og með henni leika fimm hljóðfæraleikarar úr kammerhópnum Camerartica; fiðluleikararnir Bryndís Pálsdóttir og Hildigunnur Halldórsdóttir, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari, Bryndís Björgvinsdóttir á selló og Ármann Helgason á bassaklarínett,

Ljóð Magneu er innblásið af eldsumbrotum sem við höfum lifað við undanfarin ár og fjallar um eld úr iðrum jarðar og eld að ofan, svörtu sængina sem getur bæði verið kulnað hraun og brunninn skógur og land.

Ljóðið er skrifað frá sjónarhorni lands og náttúru, Gaiu sjálfrar, hún lýsir endalokum og nýju upphafi. Hlustandanum er í sjálfsvald sett hvort hann sér mannkyn fyrir sér vera hluta af hinu nýja upphafi eður ei.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Óperudagar 2026

Upptökur frá Óperudögum í Hörpu.

,