Litla flugan

Þáttur 13 af 27

Litla flugan leikur nokkrar nokkrar lagasyprum t.d. með Hljómsveit Peters Krause og harmonikuleikaranum Charles Magnante. Söngkonan Flo Sandon's rifjar upp gamlar minningar frá Ítalíu og í framhaldinu syngur ítalski söngvarinn Rino Salviati nokkra rómantíska söngva. Bruno Martino syngur lög úr söngvakeppninni í San Remo.

Frumflutt

1. nóv. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,