Litla flugan

Þáttur 2 af 27

Danslagakeppnin 1939. Öll lögin, utan eitt, eru úr danslagakeppninni sem haldin var á Hótel Íslandi í nóvember 1939. Inni í þættinum segir PéturPétursson frá tilurð texta Tómasar Guðmundssonar við lög Sigfúsar Halldórssonar, Dagnýju og Við eigum samleið". Úr þættinum Íslensk dægurlög í eina öld.

Frumflutt

23. ágúst 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Litla flugan

Litla flugan

Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.

Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.

Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.

Þættir

,