Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Skúli Sigurðsson rithöfundur. Bókin hans Maðurinn frá Sao Paulo er nýkomin út. Glæpasaga með sögulegu ívafi sem við fengum hann til að segja okkur aðeins betur frá. En auðvitað sagði hann okkur aðallega frá því sem hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Skúli talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Kokáll e. Dóra DNA
Kverkatak e. Kára Valtýsson
Killers of the Flower Moon e. David Grann
The Lincoln Lawyer e. Michael Connelly
Thrilling Cities e. Ian Flemming
Ian Flemming, Alistair MacLean og Raymond Chandler