Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Ævar Örn Jósepsson fréttamaður og rithöfundur. Hann hefur unnið við dagskrárgerð og fréttir í útvarpi, var blaðamaður auk þess að vinna að þýðingum, skrifa bækur og handrit. En hann kom auðvitað til okkar til að segja okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Ævar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Ást og glæpur e. Davíð Draumland (líklega Steindór Sigurðsson)