Landris, dánaraðstoð, árásir á Líbanon, flóð á Spáni, útgerð í Grímsey
Fimmtán milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast undir Svartsengi. Veðurstofan segir að allt stefni í sjöunda gosið á Sundhnúksgígaröðinni fyrir árslok. Það gæti orðið enn stærra en síðustu gos.
Sérfræðingur í líknarhjúkrun segir mikilvægt að bjóða ekki upp á dánaraðstoð sem einu leið fólks út úr þjáningum. Mikilvægara sé að auka lífsgæði fólks.
Ellefu létust í loftárás Ísraelshers í Líbanon síðdegis í dag. Nýr leiðtogi Hezbollah segir samtökin geta barist í margar vikur en séu þó opin fyrir vopnahlésviðræðum.
Yfir sjötíu eru látin og margra er enn saknað eftir mestu hamfarir sem orðið hafa á Spáni á þessari öld. Þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir.
Útgerðarmenn í Grímsey eru litlu nær um hvar þeir eigi að vinna afla sem þeir veiða, en þeim hefur ekki enn verið veitt undanþága frá kröfu um vinnslu í heimabyggð. Skipa átti spretthóp um málið tveimur dögum áður en ríkisstjórnin sleit samstarfi.
Verðbólga heldur áfram að hjaðna og er komin niður í fimm prósent. Vaxtalækkunarferlið er hafið og einungis spurning hve stórt næsta skref Seðlabankans verður, segir hagfræðingur hjá Landsbankanum.