Vill meiri viðbrögð frá Vesturlöndum og fimm börn á gjörgæslu
Úkraínuforseti segir viðbrögð vesturlanda og alþjóðasamfélagsins við þátttöku norðurkóreskra hermanna í stríðinu í Úkraínu verða að vera sterkari, Rússlandsforseti sé að láta reyna á hversu langt hann komist.
Fimm börn eru á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hafa sýkst af Ecoli. Sóttvarnalæknir segir þetta með alvarlegustu hópsýkingum sem komið hafa upp hér á landi.
Íslensk stjórnvöld hafa foræmt lagasetningu ísraelska þingsins sem getur orðið til þess að starfsemi Palestínuflóttamannahjálparinnar, UNRWA, leggist af á Gaza.
Álitamál varðandi umsókn Orkubús Vestfjarða um að aflétta friðun í Vatnsfirði eru til skoðunar hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri. Hagsmunir atvinnulífs á Vestfjörðum og almennings gætu stangast á.