Staðfest er að verkföll hefjast í níu skólum á morgun, þar sem samningafundi kennara við ríkið og samband sveitarfélaga var slitið nú síðdegis, án þess að samningar tækjust.
Fjögur börn eru á gjörgæslu alvarlega veik eftir að e.coli-hópsýking kom upp á leikskólanum Mánagarði.
Forsætisráðherrar allra Norðurlanda koma fram á blaðamannafundi með Volodomyr Zelensky Úkraínuforseta á Þingvöllum innan skamms. Heimsókn forsetans hefur vakið mikla athygli og valdið raski á umferð um borgina. Þing Norðurlandaráðs verður sett á morgun.
Fullyrt er að tíu þúsund norður-kóreskir hermenn séu komnir til Rússlands til þjálfunar fyrir stríðið í Úkraínu. Talið er að hermönnum frá Norður-Kóreu geti en fjölgað eftir því sem örvænting Rússlandsforseta eykst.
Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði í dag að stríði Ísraela á Gaza yrði að ljúka fljótt og bætti við að hann hafi tekið aftur upp tilraunir til að koma á vopnahléi.
Íbúar Súdans lifa í martraðarheimi hungurs, sjúkdóma og þjóðernisofbeldis, að sögn framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon
Stjórn útsendingar: Valgerður Þorsteinsdóttir