Alvarleg hópsýking E. coli, Stuðlar opnaðir og fjölmargar umsagnir um fjárlagafrumvarpið
Eitt barn liggur alvarlega veikt á Barnaspítala Hringsins eftir að E. coli sýking kom upp í leikskólanum Mánagarði. Læknir hvetur foreldra til að leita á spítalann vakni grunur um smit.
Börn eru aftur komin á Stuðla frá Vogi en vistheimilið opnaði aftur í dag eftir bruna síðustu helgi. Margt á eftir að laga en stór hluti er enn afgirtur brunavettvangur lögreglu. Erfiðar tilfinningar bærðust með starfsfólki.
Lítið miðar í kjaradeilum lækna og kennara við ríki og sveitarfélög.
Fjórir dóu og fjórtán særðust í hryðjuverkaárás í Tyrklandi í dag. Tyrklandsforseti, sem fundar nú með leiðtogum BRICS ríkja í Rússlandi, segir að engum takist að ráðast gegn öryggi landsins.
Gert er ráð fyrir að fjárlagafrumvarpið verði afgreitt 16. nóvember - tveimur vikum fyrir kosningar. Yfir hundrað umsagnir hafa borist um frumvarpið frá stofnunum, félagasamtökum og einstaklingum en formaður fjárlaganefndar segir verða erfitt að bregðast við þeim.