Ungmenni struku eftir brunann og Moldóvar segja nei við Rússa
Ungmenni sem áttu þess kost að fara heim til foreldra sinna eftir eldsvoðann á Stuðlum voru send þangað í öruggt skjól. Tvö þeirra struku eftir brunann.
Moldóvar stóðu af sér tilraunir Rússa til að hafa áhrif á þjóðaratkvæði um Evrópusambandsaðild, segja forystumenn á Vesturlöndum. Hundruð voru handtekin sökuð um að hafa reynt að kaupa atkvæði kjósenda.
Bandarískur félagsráðgjafi sem sérhæfir sig í meðferðarúrræðum fyrir þolendur kynferðisofbeldis segir það skipta miklu máli að börnum sé trúað þegar þau greini frá ofbeldi. Það geti komið í veg fyrir ýmsa kvilla sem þau þrói með sér á fullorðinsárum.
Grindavík hefur verið opnuð almenningi á ný í samráði við ríkislögreglustjóra. Almannavarnastig í bænum hefur verið fært af hættustigi yfir á óvissustig, sem er lægsta almannavarnastigið.