Hætt við söluna á Íslandsbanka og formaður Framsóknarflokksins leggur sjálfan sig undir
Sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka verður frestað, í ljósi þess hve skammt er til kosninga. Ríkið á ríflega 40 prósenta hlut í bankanum, sem til stóð að selja á næstu misserum.
Stjórnmálafræðiprófessor segir formann framsóknarflokksins vera að taka áhættu með því að gefa oddvitasætið í Suðurkjördæmi eftir Höllu Hrund logadóttir en er ekki viss um að það hafi áhrif á úrslit kosninganna.
Umboðsmaður barna lýsir yfir þungum áhyggjum að verkfallsaðgerðum kennara og mögulegum áhrifum þeirra á börn. Foreldri nemanda í Fjölbraut á Suðurlandi telur undarlegt að boða verkföll í einstökum skólum.
Auðjöfurinn Tom Hagen er ekki lengur grunaður um að eiga þátt í dauða eiginkonu sinnar. Hún hvarf fyrir sex árum og hefur aldrei fundist.
Aldur forsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum hefur sjaldan verið meira til umræðu en í því kapphlaupi sem nú stendur um Hvíta húsið. Kamala Harris segir Donald Trump ekki ráða við annað kjörtímabil.