Morðrannsókn, hvítabjörn felldur, Ísrael og Líbanon, viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli, 19 fangar en engir fangaklefar, hættumat
Lögregla telur ekki vera fót fyrir þrálátum sögusögnum um að andlát tíu ára stúlku á sunnudag megi tengja við skipulagða glæpastarfsemi.
Hvítabjörn sem gekk á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum í dag var felldur. Lögreglustjórinn á Vestfjörðum segir engin önnur úrræði til staðar.
Varnarmálaráðherra Ísraels ítrekar að árásum gegn Hezbollah-samtökunum í Líbanon sé ekki lokið.
Nítján einstaklingar eru í gæsluvarðhaldi á vegum lögreglunnar á Suðurnesjum, þrátt fyrir að embættið hafi ekki nothæfa starfsstöð.
Nýtt hættumat við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga er að mestu óbreytt. Kvikusöfnun og landris við Sundhnúksgígaröð er svipuð og áður.
Helmingi færri íbúðir eru í byggingu á höfuðborgarsvæðinu en sveitarfélögin áætluðu. Aukið jafnvægi virðist þó vera að færast yfir fasteignamarkað þrátt fyrir mikla eftirspurn.