Yazan ekki fluttur úr landi og talstöðvar springa í Líbanon
Ríkislögreglustjóri ætlar ekki að vísa Yazan Tamimi og fjölskyldu hans úr landi fyrir helgi. Sem þýðir að mál þeirra fær efnislega meðferð hér.
Níu eru látnir og rúmlega þrjú hundruð slasaðir eftir að talstöðvar í notkun Hezbollah-samtakanna sprungu víða um Líbanon í dag.
Fjölmennur borgarafundur var haldinn í Mosfellsbæ í gær. Um 300 foreldrar mættu og ræddu stöðu ungmenna í samfélaginu
Franskur maður sem er ásamt tugum annarra ákærður fyrir að hafa tekið þátt í kynferðisbrotum gegn konu í boði eiginmanns hennar, Dominique Pelicot, hefur játað að hafa brotið með sama hætti á eiginkonu sinni.
Og rampur númer þrettán hundruð var vígður á leikskóla í Breiðholti í dag.