Krakkakastið
Umsjón: Fríða María Ásbergsdóttir.
Fríða María elskar að ferðast og í hverjum þætti tekur hún fyrir land sem hún hefur nú þegar ferðast til eða langar að koma til í framtíðinni. Í þessum þætti fjallar hún Eþíópíu, landið þar sem kaffið var fundið upp og elstu manneskjubein í heimi fundust. Þar er margt forvitnilegt og mjög ólík menning og við eigum að venjast hér á Íslandi. Við heyrum nýja eþíópíska tónlist en það er Margrét Helga sem kynnir okkur fyrir henni. Margrét Helga ólst upp í Eþíópíu og mætir í skemmtilegt spjall til Fríðu í lok þáttar.
Viðmælandi: Margrét Helga Kristjánsdóttir.
Stjórnandi: Fríða María Ásbergsdóttir.
Verkleg umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Umsjón: Fríða María Ásbergsdóttir.