Krakkakastið
Umsjón: Fríða María Ásbergsdóttir.
Núna er apríl og þá er líka blár apríl. Markmiðið með bláum apríl er að fræða fólk um einhverfu og því mun það vera þema þáttarins í mánuðinum. Í síðasta þættinum fær Fríða til sín unga konu með einhverfu en það er María Carmela Torrini. Hún hefur verið að gera stuttmyndir um lífið með einhverfu og þær Fríða tala um ýmsar skemmtilegar og fróðlegar hliðar einhverfunnar. Hvað er einhverfukast? Hvað þykir henni erfitt að gera sem fólki án einhverfu finnst ekki erfitt? Hvað er best við að vera með einhverfu?
Viðmælandi: María Carmela Torrini
Umsjón: Fríða María Ásbergsdóttir
Umsjón: Fríða María Ásbergsdóttir.