Kaflaskil

6. þáttur: Bekkjarkerfi eða áfangakerfi

Framhaldsskólar landsins eru yfir 30 talsins og flestir þeirra geta tekið á móti flestum þeirra sem sækja um skólavist loknum grunnskóla. Nemendur með erlendan bakgrunn er fjölbreyttur hópur með svipaðar væntingar til framhaldsskólans og aðrir nemendur í íslenska skólakerfinu. Aftur á móti efast þau oft um kunnáttu sína í íslensku. Flestir framhaldsskólar eru með áfangakerfi en skólastjórnendur hvetja ungmenni til horfa á styrkleika sína og velja skóla í samræmi við þá. Viðmælendur í sjötta þætti eru: Eva Dögg Sigurðardóttir, Fríða Bjarney Jónsdóttir, Guðrún Inga Sívertsen, Jón Páll Haraldsson, Kristjana Stella Blöndal, Linda Heiðarsdóttir, Ómar Örn Magnússon, Meyvant Þórólfsson, Steinn Jóhannsson og nemendur í Hagaskóla og Laugalækjarskóla.

Frumflutt

14. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Kaflaskil

Kaflaskil

Nemendur í 10. bekk eru þessar vikurnar sækja um framhaldsskólavist fyrir næsta vetur og möguleikarnir eru margir á þessum kaflaskilum í skólagöngu þeirra. Um leið er ekki sjálfgefið inngöngu í skólann sem er efstur á óskalistanum nema nemandinn með annaðhvort A eða B plús í öllu. Og er A í einum skóla það sama og A í öðrum?

Ef nemandi er með fötlun eða erlendan bakgrunn er síðan alls ekki víst skólinn sem viðkomandi hugnast best geti tekið á móti honum og framhaldsskólarnir eru misvinsælir. Því skipta lokaeinkunnir úr grunnskóla sköpum ef sótt er um vinsælustu framhaldsskólana. Í þáttaröðinni Kaflaskil er rætt við fólk sem þekkir vel til í völundarhúsi menntakerfisins á Íslandi.

Þáttaröðin Kaflaskil er framleidd af Rás 1.

Umsjón og dagskrárgerð: Guðrún Hálfdánardóttir.

Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

Þættir

,