Æskuár Envers Hoxha
Í þættinum er fjallað um Enver Hoxha, sem varð einræðisherra í Albaníu eftir seinna stríð, um uppvöxt hans í sunnanverðri Albaníu og námsár í Evrópu.
Fyrsti þáttur um leit breskra landkönnuða að upptökum Níl í Afríku um miðbik 19. aldar. Í þessum þætti fara þeir Richard Francis Burton og John Hanning Speke í sinn fyrsta leiðangur saman, til Sómalílands í Austur-Afríku.

Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.