ok

Hver á landi fegurst er?

Fyrsti þáttur

Hvaðan kemur hugmyndin um að útlit skipti máli? Eru þriggja ára börn orðin meðvituð um útlitsstaðla? Hvenær urðu fegurðarstaðlar til? Hver er saga fegurðarstaðla og hvernig birtast þeir okkur í Íslendingasögum? Reynt verður að svara þessum og fleiri spurningum í fyrsta þætti.

Þáttastjórnandi: Kristlín Dís Ingilínardóttir.

Viðmælendur: Andri Steinþór Björnsson, prófessor í sálfræði, Vilborg Kolbrún Vilmundardóttir, næringarfræðingur, Fríða Ísberg, rithöfundur, Katrín Helga Andrésdóttir, söngkona, Nína Hjálmarsdóttir, sviðshöfundur, Sólbjört Vera Ómarsdóttir, myndlistarkona og Sverrir Jakobsson, sagnfræðingur, Ingibjörg Eva Þórisdóttir, doktor í sálfræði og sérfræðingur í samfélagsmiðlanotkun unglinga.

Frumflutt

15. júní 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Hver á landi fegurst er?

Hver á landi fegurst er?

Það er gömul saga og ný að ekki er hægt að treysta því sem fyrir augu ber. Oft er flagð undir fögru skinni eða prins í frosklíki. Við látum samt blekkjast af útliti, drögum ályktanir um hvaða innri mann manneskja hefur að geyma án þess að hafa kynnst henni, refsum ófríðu fólki og veitum þeim fögru forskot.

Líffræði og menning virðast eggja mannkynið áfram í ákveðinni útlitsdýrkun. Þriggja ára byrjum við að dæma út frá útliti og hefur það gríðarleg áhrif í gegnum æviskeiðið. Þrátt fyrir að útlitsstaðlar virðast alltaf hafa fylgt okkur hafa þeir tekið stakkaskiptum í gegnum tíðina og hinn svokallaði fullkomni líkami í dag hefði eflaust ekki þótt sérlega tilkomumikill fyrir nokkur hundruð árum.

Kristlín ræðir við sálfræðinga, vísindamenn, dansara, baráttufólk, lýtalækni, sagnfræðing og alla vini sína til að reyna að komast að því hvar og hvenær útlitsfordómar byrja, hvaða áhrif þeir hafa og hvort það sé hægt að breyta hausnum á sér.

Umsjón: Kristlín Dís Ingilínardóttir.

,