Fram undan

Erfitt rekstrarumhverfi sérverslana, efnahagshorfur, nýir Evruseðlar og próteinæði

Það vakti mikla athygli í vor þegar Húrra Reykjavík lokaði öllum fataverslunum sínum. Þær höfðu verið í rekstri í 12 ár og voru með þeim vinsælustu hér á landi. Sindri Snær Jensson, annar stofnandi og eigandi Húrra, sagði í viðtali í Viðskiptablaðinu í apríl allt hefði verið reynt til halda áfram en rekstrarumhverfið hefði versnað jafnt og þétt á undanförnum árum og það hafi orðið til þess sjálfstæðum sérverslunum væri nærri ókleift standa undir starfseminni. Í ferð okkar í Kringluna á dögunum sáum við einnig óvenju mörg verslunarbil standa tóm. En hvað gerir rekstrarumhverfið svona erfitt? Þær Tinna Hemstock sem rekur skóbúðina Apríl á Garðatorgi og Karin Kristjana Hindborg eigandi snyrtivöruverslunarinnar Nola sem er í Ármúla komu til okkar og fóru yfir þessi mál en þær eru báðar reynslumiklar í verslunarrekstri.

Verðbólga mælist 5,3% í júlí, sem er aukning um 0,1 prósentustig milli mánaða samkvæmt verðólgumælingu hagstofunnar sem birtist fyrir helgi. Niður­staðan er lítil­lega yfir spám bankanna sem gerðu allir ráð fyrir ár­s­verðbólga yrði óbreytt. er talið alveg ljóst forsenduákvæði kjarasamninga um verðbólga mælist niður fyir 4,7 prósent í næsta mánuði muni ekki halda og líkur á kjarasamningar verði endurskoðaðir í haust. En hvernig eru efnahagshorfurnar fram undan og hvað gerir peningastefnunefnd Seðlabankans þegar næsta stýrivaxtaákvörðun verður tekin? Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur hjá Íslandsbanka leit við hjá okkur.

Seðlabanki Evrópu kynnti í gær tíu nýjar hönnunartillögur útgáfu nýrra Evruseðla. Seðlabankastjórinn mun sjálfur velja eina af tillögunum sem sigurvegara. Meginþema hönnunarinnar var tvíþætt, annars vegar evrópsk menning væri í hávegum og hins vegar fuglar og fljót yrðu fyrirferðamikil. Yfir 1200 tillögur bárust og valdi dómnefnd hönnunartillögurnar tíu í úrslit en íbúar í Evrópusambandinu geta greitt atkvæði um tillögurnar. Anton Jónas Illugason, grafískur hönnuður og formaður Félags íslenskra teiknara, kom til okkar og fór yfir hönnunartillögurnar.

Á síðustu árum hefur neysla á ýmis konar próteinvörum aukist verulega hér á landi og hillur verslana uppfullar af próteinbættum vörum hvers konar drykkjum, snakki og nammi svo fátt eitt nefnt. Þar auki eru þessar vörur verulega fyrirferðarmiklar í auglýsingaherferðum. Markaðsherferðirnar minna okkur á borða meiri prótein en eru þetta góðar vörur og hversu mikið prótein fæst úr neyslu þessara vara? Dögg Guðmundsdóttir klínískur næringarfræðingur hjá Nutriment fór yfir próteinneyslu og hvaða þarf hafa í huga í þessum málum.

Birt

28. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,