Fram undan

Nýr bæjarstjóri í Grindavík, almyrkvinn, landsmót hestamanna, markaðsmál á Íslandi, stúkan í Laugardalslaug og brúðkaup Taylor Swift

Pétur G. Markan, fyrrverandi bæjarstjóri Hveragerðis, hefur verið ráðinn bæjarstjóri Grindavíkur. Pétur var einnig sveitarstjóri Súðavíkurhrepps í fimm ár og hefur gegnt fjölmörgum stjórnunar- og trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélög og opinbera aðila. Hann tekur við sem bæjarstjóri af Fannari Jónassyni sem gegndi starfinu frá 2017 og var andlit bæjarins þegar jarðhræringar á Reykjanesskaga urðu þess valdandi rýma þurfti Grindavík og finna bæjarbúum heimili. tekur Pétur við Grindavík á nýjum og spennandi tímum en verkefnin eru meðal annars leiða endurreisn og uppbyggingu Grindavíkur. Pétur kom til okkar og fór yfir verkefnin fram undan.

Sveitarfélög vestan til á landinu og aðilar í verslun og ferðaþjónustu eru í óða önn undirbúa almyrkvann sem verður á sólu í ágúst. Búist er við fjölda fólks á Snæfellsnesi og Vestfjörðum þar sem sjást á vel til myrkvans í um tvær mínútur eða lengur. Bæjarráð Vesturbyggðar lýsti yfir áhyggjum af undirbúningi stjórnvalda og þá helst því sem snýr símasambandi og vegasamgöngum. Gerður Björk Sveinsdóttir sveitarstjóri Vesturbyggðar var á línunni hjá okkur.

Landsmót hestamanna hófst formlega í gær á Hólum í Hjaltadal í Skagafirði og stendur til 11. Júlí. Undirbúningur hefur staðið yfir mánuðum saman, hundruð keppenda og sýnenda mæta til leiks og skráðir hestar eru alls um níu hundruð. En hvernig er halda utan um þessa dagskrá og hvernig hefur mótið farið af stað? Hilda Karen Garðarsdóttir mótsstjóri landsmótsins sagði okkur frá því.

Markaðssetning hefur breyst á undanförnum árum og íslensk fyrirtæki leita sífellt nýrra leiða til til neytenda sérstaklega á samfélagsmiðlum þar sem samkeppnin um athygli fólks er meiri en nokkru sinni fyrr. Hvað virkar í dag og hvernig fyrirtæki til fólks. Steinar Þór Ólafsson, sérfræðingur í samskiptum, miðlun og markaðsmálum fór yfir þessi mál í Fram undan.

Til stendur rífa stóran hluta áhorfendastúkunnar við Laugardalslaug þar sem hún telst hættuleg samkvæmt nýju áhættumati. Margir sundlaugargestir harma ákvörðunina en stúkan hefur verið eitt helsta kennileiti Laugardals síðan 1968. Steinþór Kára Kárason arkitekt og eigandi hjá Kurt og kom til okkar.

Brúðkaup aldarinnar átti sér víst stað í New York um helgina þegar tónlistarkonan Taylor Swift og fótboltakappinn Travis Kelce gengu í hjónaband á föstudagskvöld. Allt var þó mjög á huldu því sem sneri brúðkaupinu. Ingunn Lára Kristjánsdóttir samfélagsmiðlafréttamaður RÚV er heilmikill Swifty eins og aðdáendur poppstjörnunnar kallast og hefur fylgst með því sem þó hefur borið fyrir augum. Hún leit við hjá okkur í lok þáttarins.

Birt

6. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,