Fram undan

Stríð í Mið-Austurlöndum, glænýtt safn Gísla á Uppsölum, fjölbreytt námskeið í Frama, skógareldar í Frakklandi, brjálað veður á Bræðslunni

Glænýtt safn um Gísla Gíslason á Uppsölum verður formlega opnað í Selárdal í Arnarfirði í byrjun ágústmánaðar. Einbúinn Gísli á Uppsölum varð þjóðþekktur í upphafi níunda áratugar síðustu aldar þegar sjónvarpsmaðurinn Ómar Ragnarsson tók hús á Gísla í þætti sínum Stiklum hér á RÚV. Hús Gísla hefur á síðustu mánuðum verið gert upp og mun hýsa safnið og sem veit sitthvað um þetta verkefni er Kári G. Schram sem sagði okkur frá safninu og hvað fram undan væri í Selárdal.

Yfir 300.000 hafa þurft yfirgefa heimili sín í Frakklandi og á Spáni vegna skógarelda og talið er um 420 ferkílómetra svæði hafi orðið eldi bráð í Frakklandi. Þetta eru meðal umfangsmestu rýminga á friðartímum í sögu Frakklands og ljóst þetta eru einir verstu skógareldar í sögu landsins. Brynja Huld Óskarsdóttir öryggis- og varnarmálasérfræðingur var á ferðalagi um Frakklandi um nýliðna helgi og lýsti óhuggulegri upplifun sinni á samfélagsmiðlum þar sem hún flúði Bordeaux í gulgráu landslagi, drunga og brunalykt.

Frami er nýr vefskóli sem byggir á þeirri sýn menntun eigi vera aðgengileg alla ævi. Frami býður upp á fjölbreytt námskeið m.a. á sviði tækni og forritunar, heilsu og vellíðan og ritista og bókmennta svo eitthvað nefnt. Í ágúst verður einnig boðið upp á krakkasmiðjur fyrrir börn á aldrinum 9–12 ára þar sem þau kynnast hugarfari, sögum, tækni og fjármálalæsi. Kristín Hildur Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri Frama kom til okkar og sagði okkur allt um þennan nýja vefskóla og hvað er þar í boði.

Augu heimsins beinast þessa dagana í Mið-Austurlöndum. Hlé hefur verið á stríði Írans og Bandaríkjanna síðustu nætur. Nóttin í nótt var þriðja í röð þar sem ekki berast fregnir af árásum milli ríkjanna vegna deilna um Hormússund sem liggur á milli Persaflóa og Ómanflóa. Vonir hafa kviknað friðarsamingar náist. Það eru fáir íslendingar sem þekkja þessi mál jafn vel og Erlingur Erlingasson hernaðarsagnfræðingur. Hann er búsettur í London en er staddur hér á landi og mætti til okkat í hljóðver.

Austfirðingar hafa upplifað einmuna veðurblíðu upp á síðkastið og höfðu því skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Bræðslunnar á Borgarfirði eystra vaknað upp í sól og blíðu í undirbúningsvinnunni síðustu vikurnar. Það kom því afar flatt upp á Bræðslufólk mæta allt í einu slagveðri, norðvestan roki og rigningu þegar hátíðin fór loks af stað um nýliðna helgi. Áskell Heiðar Ásgeirsson er einn af Bræðslustjórunum, er með meirapróf í viðburðahaldi en þurfti takast á við krísustjórnun á hátíðinni í ár.

Birt

27. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,