Fram undan

Ferðaveðrið, HM í knattspyrnu, álögin á Vatnsenda, söguganga kellinga og landsleikur í körfuknattleik

Það er stór ferðahelgi framundan og margir á faraldsfæti bæði innanlands og erlendis. Við tókum stöðuna á veðrinu um helgina með veðurfræðingnum Marcel de Vries.

dregur sannarlega til tíðinda á hverjum leikdegi á HM í knattspyrnu í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada en hver stórþjóðin á eftir annarri hefur þurft bíta í það súra og detta út úr keppni í 32. liða úrslitum. Það er ekki úr vegi en við hér í Fram undan förum yfir stöðuna með sérfræðingi sem vakinn og sofinn er yfir mótinu og þess vegna kom hann Gunnar Birgisson til okkar og fór yfir mótið.

Þættirnir álögin á Vatnsenda á Rás eitt hafa vakið mikla athygli síðustu vikur. Í áratugi hefur Hjaltested-ættin tekist á um jörðina Vatnsenda við Elliðaárvatn í Kópavogi. Enn í dag ræður 90 ára gömul erfðaskrá för á framtíðarbyggingarlandi höfuðborgarsvæðisins og þvingar rúmlega tvítugan erfingja til stunda búskap inni í byggð. Þriðji og síðasti þátturinn af Álögum á Vatnsenda er væntanlegur í dag.Þóra Tómasdóttir fréttamaður er konan á bakvið þættina og hún kíkti til okkar.

Fjölskylduhátíðin Írskir dagar á Akranesi hófst í vikunni en þá minnast Skagamenn og -konur hinnar keltnesku arfleifðar sinnar og gera sér glaðan dag um leið. Þessa daga eru brottfluttir Skagamenn kallaðir heim og á Írskum dögum. Dagskráin er venju verulega metnaðarfull og fjölbreytt. Einn af þeim fróðlegu viðburðum sem boðið er upp á og við í Fram undan hnutum um er Söguganga kellinga. Þær Hallbera Fríður Jóhannesdóttur og Halldóra Jónsdóttir sögðu okkur frá göngunni.

Það er nóg um vera í íþróttunum þessa dagana. Karlalandsliðið í körfubolta heldur leið sinni á HM áfram í kvöld þegar liðið tekur á móti Ítalíu í Laugardalshöll klukkan hálf átta. Liðið mætir svo Bretlandi í Manchester á sunnudag en þrjú efstu lið riðilsins fara áfram í næstu umferð og er Ísland sem stendur í 3. sæti stigi á undan Bretlandi þannig það er til mikils vinna. Ægir Þór Steinarsson fyrirliði landsliðsins leit við hjá okkur í lok þáttar.

Birt

2. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,