Fram undan

Símabann í skólum, sama samtalið um ESB, Eyjólfur í Epal og eilífar deilur um grásleppuskúr.

Fram undan, nýr morgunþáttur í sumarbúningi, heilsaði á fyrsta degi júlímánaðar og tekur þátturinn við keflinu af Morgunútvarpinu á Rás 2 í allt sumar. Það eru þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr sem stýra þættinum og Þráinn Steinsson er þeim til halds og trausts.

Fulltrúar Ungheilla, raddar unga fólksins hjá Barnaheillum, sökuðu Ingu Sæland barna- og menntamálaráðherra um sýndarsamráð í Morgunútvarpinu í gær. Þau, ásamt hópi ungmenna um allt land, tóku þátt í vinnustofu um símabann og aldurstakmörk á samfélagsmiðlum og lögðu fram ýmsar tillögur. Ráðherra talaði um mikilvægi þess raddir barnanna í umræðuna og notaði orðin „Ekkert um ykkur án ykkar“. Þegar drög reglugerðarinnar voru birt kom hins vegar í ljós engar tillögur úr vinnustofu barnanna rötuðu inn í drög reglugerðarinnar. Inga Sæland var á línunni hjá okkur.

Verslunina Epal þekkjum við mörg hér á landi fyrir fallega hönnuð húsgögn og hvers konar húsbúnað. Epal var stofnað 1975 af 29 ára Eyjólfi Pálssyni sem þá var nýkominn heim úr námi í húsgagnahönnun frá Kaupmannahöfn. Eyjólfur hefur í áratugi verið einn helsti frumkvöðull íslenskrar hönnunar og með óþreytandi eldmóði lagt sitt af mörkum til kynna góða hönnun fyrir Íslendingum. Epal fagnaði fimmtíu ára afmæli í fyrra og um helgina varð Eyjólfur sjálfur áttræður. Við fengum Epal-frumkvöðulinn sjálfan, Eyjólf Pálsson, í heimsókn.

Í gömlum grásleppuskúr við Ægisíðu heldur gusumeistarinn Vala Baldursdóttir úti vinsælli sánu sem hún kallar Sækot en um skúrinn hefur staðið mikill styr síðustu misseri. Borgarlögmaður telur Reykjavíkurborg þurfi stöðva rekstur gufubaðsins þar sem eigendur gusunnar eigi ekkert tilkall til skúrsins. Fyrrum eigandi hússins afsalaði því borginni sem lýsti yfir áhuga á vernda og varðveita menningarminjar. Síðar virðist sami eigandi hafa rift afsalinu við borgina og selt gusunni skúrinn. Þetta mál virðist því flóknara en ella og sem betur fer fengum við hana Völu Baldursdóttur til okkar.

En talandi um það sem er fram undan. Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands Evrópusambandinu en hún fer fram 29. ágúst. Á laugardaginn fór í loftið nýr hlaðvarpsþáttur á Rás eitt sem ber heitið Sama viðtalið um ESB. Þeir Baldvin Þór Bergsson, fréttamaður til margra ára, og Patrekur Jaime áhrifavaldur stýra þættinum og tækla ESB-umræðuna, hvor með sínum hætti, í von um ólíkar nálganir þeirra hjálpi hlustendum svara stóru spurningunni: Á hefja á viðræður um aðild Íslands Evrópusambandinu? Þeir Patrekur og Baldvin litu við.

Birt

1. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,