Beðmál í borginni og aldamótadætur

4. þáttur - Vinátta

Vinkonurnar fjórar Carrie, Samantha, Miranda og Charlotte segjast vera sálufélagar. En vináttan er ekki alltaf draumur í dós; þær fara alveg í fýlu, dæma hver aðra og rífast. Þær koma samt alltaf á endanum saman á kaffihúsinu góða í New York. Er vinátta þeirra raunsæ eða er hún frekar dæmi um fantasíu sjónvarpsþátta? Gæti hún verið fyrirmynd raunverulegrar vináttu? Nanna Hlín og Sunna Kristín velta þessum spurningum fyrir sér ásamt valinkunnum aðdáendum þáttanna.

Viðmælendur: Alda Björk Valdimarsdóttir, Ásta Kristín Björnsson, Birna Ósk Harðardóttir, Edda Guðmundsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, Helgi Ómarsson, Hildur Kristín Þorbjörnsdóttir og Lilja Reykdal Snorradóttir.

Umsjón og dagskrárgerð: Sunna Kristín Hilmarsdóttir og Nanna Hlín Halldórsdóttir

Frumflutt

12. okt. 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Beðmál í borginni og aldamótadætur

Beðmál í borginni og aldamótadætur

Æskuvinkonurnar Nanna Hlín Halldórsdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir fjalla um hina geysivinsælu sjónvarpsþætti Sex and the City, eða Beðmál í borginni. Þættirnir hófu göngu sína í Bandaríkjunum árið 1998 og voru teknir til sýninga á RÚV árið 2000. Spaugilegar kynlífssenur, fallegir skór, vinátta kvenna, einhleypa konan, misheppnuð ástarsambönd og margt fleira verður krufið í spjalli vinkvennanna sem ræða einnig við sérfræðinga og aðdáendur þáttanna.

Umsjón: Nanna Hlín Halldórsdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir.

Framleiðsla: Gígja Hólmgeirsdóttir.

Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.

Þættir

,