Jón Arason, síðasti kaþólski biskupinn á Íslandi, er einn frægasti biskup í sögu landsins, en hann var hálshöggvinn í Skálholti árið 1550 eftir að hafa barist hatrammlega gegn því að mótmælendatrú tæki við af kaþólsku. Á þessu ári eru 500 ár liðin frá því að Jón var vígður biskup árið 1524 og í tilefni af því verður þátturinn „Á tónsviðinu“, fim. 27. júní, helgaður tónlist sem tengist sögu Jóns. Matthías Jochumsson samdi leikrit um Jón Arason undir lok 19. aldar og í þættinum verður flutt tónlist úr leikritinu eftir þrjá höfunda: Karl O. Runólfsson, Gunnar Róbertsson Hansen og Þorkel Sigurbjörnsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.