16:05
Síðdegisútvarpið
Tugmilljóna ástarsvik, umdeildur hakkari og kjaramálin

Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Dæmi eru um að Íslendingar hafi tapað tugum milljóna á ástarsvikum. Þetta eru svik sem oft eru kennd við Nígeríusvindl. Ingi Freyr Vilhjálmsson, annar umsjónarmanna Þetta helst á Rás 1 hefur verið að skoða þessi mál sem endalaust er verið að vara við en fólk gengur samt í gildruna. Ingi Freyr kom til okkar.

Í gærkvöldi hóf Kveikur göngu sína þennan veturinn á RÚV. Efnistökin í fyrsta þætti er mikil notkun geðlyfja á hjúkrunarheimilum. Við fengum Grím Atlason framkvæmdastjóra Geðhjálpar til okkar að ræða þessa notkun og þá staðreynd að þriðjungur heimilismanna hjúkrunarheimila fái sterk geðlyf.

Í kvöld sýnir RÚV sérstakan afmælisþátt í tilefni að því að Ríkissjónvarpið hóf göngu sína 30. september 1966. Sem sagt RÚV í sjónvarpi á sextíu ára afmæli. Þær Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir og Ragnheiður Thorsteinsson hafa veg og vanda að þættinum. En hvað verður okkur boðið uppá? Þær sögðu okkur betur frá því.

Enska úrvalsdeildin í fótbolta staðfesti í gær að Manchester City hefði verið sakfellt fyrir alvarleg brot á fjármálareglum deildarinnar. Brotin voru framin yfir níu tímabil og eru þau alvarlegustu í sögu deildarinnar. En hvað varð til þess að rannsókn málsins hófst á sínum tíma? Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, fréttaritari hjá Fótbolta.net, fór yfir það með okkur.

Stöðugildum kennara í grunnskólum á Íslandi fjölgaði um 16% á árunum 2015 til 2024 á meðan nemendum fjölgaði um 6%. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar þar sem sjónum er sérstaklega beint að áhrifum kennaraskorts á skólastarf. Samkvæmt skýrslunni hefur skortur á kennurum áhrif á flest menntakerfi OECD-ríkjanna en erfiðleikar við ráðningar eru mestir í dreifbýli og á svæðum sem standa höllum fæti. Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, kom til okkar.

Í vor hófst formlegt samstarf VR, LÍV (Landssamband íslenzkra verzlunarmanna) og Fagfélaganna um forsendur kjarasamninga enda stefndi í það að þær myndu bresta í ágúst. Einhver fyrirtæki og sveitarfélög hafa boðað að þau ætli að frysta verðhækkanir hjá sér í það minnst til áramóta. En spjótin beinast að ríkisstjórninni og Alþingi enda segja félögin að fjárlagafrumvarpið eins og það lítur út núna muni ekki verða til þess að neitt verði í hendi fyrir 8. október sem er frestur stéttarfélaganna til að segja upp samningum. Við ræddum við þau Höllu Gunnarsdóttir formann VR og Jakob Tryggvason formann RSÍ.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 1 klst. 55 mín.
Leyft öllum aldurshópum
    ,