Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Wise og Defend Iceland beinum sjónum sínum að því hvernig gervigreind er að umbreyta öryggislandslaginu á Vinnustofu Kjarval í dag. Hvernig er gervigreind notuð í nútíma átökum? Hvernig breytir hún netógnum og vörnum? Og hvað þýðir þessi þróun fyrir fyrirtæki, stofnanir og samfélagið allt? Theódór R. Gíslason og Hjörtur Pálmi Pálsson frá Defend Iceland komu til okkar.
Allt of mikil neikvæðni ríkir í umræðunni um ferðaþjónustuna og nú ætlar hún að snúa vörn í sókn og einblína á það jákvæða sem er að gerast í þessari mögnuðu atvinnugrein. Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, kom til okkar með bros á vör.
Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi alþingismaður, birti á dögunum grein á Vísi undir fyrirsögninni Hin drepleiðinlega Bókun 35. Þar fer hann í saumana á þessu lagatæknilega fyrirbæri sem skaut upp kollinum á ný eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um síðustu helgi. Við heyrum í Helga og fengum hann til að útskýra Bókun 35 á mannamáli.
Hvernig eigum við að klæða okkur í haust? Edda Gunnlaugsdóttir, fatahönnuður og umsjónarmaður tísku og förðunar á Smartlandi, komu til okkar og fóru yfir það helsta í hausttískunni.
Einar Örn Jónsson mætti til okkar og fór yfir félagaskiptagluggann í fótboltanum sem lokaði í vikunni með tilheyrandi stjarnfræðilegum fjárútlátum.
Ný athugun á veðurmælingum bendir til þess að breytingar á landslagi umhverfis Grindavík hafi haft áhrif á veðrið í bænum. Norðanáttin er nú hægari og hlýrri en áður og hafgolan virðist einnig hafa breyst. Þetta kemur fram Í samantekt Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings og Sveins Gauta Einarssonar umhverfis- og orkuverkfræðings. Einar var á línunni.
