
Útvarpsfréttir.
Rúmur helmingur flugmanna segist í könnun FÍA hafa sofnað við störf. Samgöngustofa metur niðurstöður könnunar á þreytu flugmanna í starfi og hvort bregðast þurfi við.
Heimurinn stendur frammi fyrir hættulegum öfgum í veðri, segir framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. El Niño verður öflugra í ár en nokkru sinni samkvæmt nýju mati Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar.
Yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra segir tillögur að lengingu hámarksgæsluvarðahlds í sex mánuði í samræmi við reynslu lögreglu af rannsóknum flókinna sakamála síðustu ár.
Gloria Steinem, ein af þekktustu baráttukonum fyrir jafnrétti og femínisma í Bandaríkjunum, er látin, 92 ára að aldri.
Stjórnvöld í Frakklandi ætla að skera upp herör gegn hraðtísku og leggja gjald á flíkur frá tískurisum eins og Shein, Temu og AliExpress. Gjaldið er frá hálfri evru fyrir nærföt upp í tólf fyrir jakka.
Risa-borgarísjakar lóna úti fyrir Hrauni á Skaga. Þeir brotna úr stórri íseyju sem kemur frá Grænlandi og hafa verið áberandi við strendur landsins í sumar.
Listi yfir þjóðarleiðtoga og aðra gesti sem verða við útför Haraldar Noregskonungs í næstu viku verður ekki birtur af öryggisástæðum.
Ljósanótt var sett í hellidembu í Keflavík í morgun.
Knattspyrnusamband Íslands hefur keypt hitapulsu á 40 milljónir. Hún heldur Laugardalsvelli leikfærum á veturna. Framkvæmdastjóri KSÍ segir þetta spara tugi milljóna, sambandið hefur leigt pulsuna dýrum dómum.