12:42
Þetta helst
Eitt stærsta skattamál Íslandssögunnar: Gæti krafið bílaleigur um 25 milljarða

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Eitt stærsta mögulega skattamál Íslandssögunnar er nú á borði skattayfirvalda. Skatturinn hefur sent nokkrum bílaleigum hér á landi bréf og sagt þeim frá því að til skoðunar sé að krefja einhverjar þeirra um virðisaukaskatt af tekjum þeirra vegna sölu á vátryggingum aftur í tímann.

Ef Skatturinn endurákvarðar skattgreiðslur þessara bílaleiga getur heildarupphæðin numið allt að 25 milljörðum króna.

KPMG er að vinna fyrir nokkrar af stærstu bílaleigum landsins í málinu. Lögfræðingurinn Kristinn Jónasson, segir að bílaleigurnar hafi verið í góðri trú í málinu og að þæt hafa leitað ráðgjafar hjá bæði Skattinum og skattasérfræðingum í málinu. Rætt er við Kristinn um deiluna við Skattinn.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,