07:03
Morgunútvarpið
Lýðskólinn á Flateyri,snúrur aftur í tísku,Hjálmar um Kerecis og öll bestu þrifa tipsin

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Engin próf - engar einkunnir. Þessi orð eru áberandi á vef Lýðskólans á Flateyri sem snýst í grunninn um reynslu og upplifun í staðinn fyrir hefðbundið bóklegt nám. Lýðskólinn býður upp á verklegt nám þar sem nemendur læra með því að gera. Þetta er eitthvað sem við vildum kynna okkur betur og Margrét Gauja, skólastjóri Lýðskólans á Flateyri, mætti á svæðið og fræddi okkur.

Fáir eru með puttann betur staðsettan á púlsinum en okkar maður Guðmundur Jóhannsson, þegar kemur að nýjustu tækni. Hann kom til okkar, eldhress að vanda, og fór yfir það allra nýjasta sem er í gangi og að þessu sinni voru það snúrur.

Indriði Þorláksson, fyrrverandi ríkisskattstjóri, birti á dögunum grein á vef Heimildarinnar um sölu ný­sköp­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Kerec­is til hins danska Coloplast. Indriði segir í greininni margt benda til þess að með viðskiptunum hafi Kerecis raðað sér í hóp þeirra fyrirtækja í erlendri eigu hér á landi sem sniðganga íslensk skattalög og skila hér engum tekjum nema launum starfsmanna og sköttum af þeim. Frumkvöðullinn Hjálmar Gíslason svaraði grein Indriða sem hann sagði gera lítið úr árangri öflugs nýsköpunarstarfs. Hjálmar kom til okkar í Morgunútvarpið.

Eitt virkasta samfélagið á Facebook er hópurinn Þrifatips, sem telur rúmlega 30 þúsund snyrtipinna. Þar ráða ríkjum systurnar Guðbjörg Erna Sigurpálsdóttir og Sigrún Sigurpálsdóttir frá Akureyri og í tilefni af nýrri viku fannst Morgunútvarpinu kjörið að hóa í systurnar og fá bestu þrifaráðin sem eru í boði í hópnum. Þær voru því í beinni með okkur frá hljóðveri RÚV á Akureyri.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,