07:03
Morgunútvarpið
Þórdís Kolbrún um ESB,umgengni í Hlíðarfjalli og íslenskan í heimi gervigreindar

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Er ekki tímabært að heyra jákvæða frétt um gervigreindina. Íslenskan stendur í raun mjög vel í heimi gervigreindarinnar miðað við örtungumál en það er ákveðið stigakerfi til sem metur það. Við ætlum að fræðast um stöðu íslenskunnar og framtíðarmöguleika nú þegar gervigreindin er að taka yfir. Róbert Fjölnir Birkisson, hugbúnaðaverkfræðingur hjá Miðeind, mætti til okkar en hann flytur erindi á degi verkfræðinnar á Hilton Reykjavík Nordica á föstudaginn.

Vefurinn Akureyri.net greindi frá því í vikunni að íbúum hafi blöskrað umgengnin í Hlíðarfjalli. Hópar víða af landinu hafa undanfarið hisst í fjallinu til að skíða, og að því virðist drekka mikið magn af bjór, og ber umhverfið þess merki. Undanfarið hefur verið mikið að gera í fjallinu og í lok síðasta mánaðar fengum við fregnir að því að lögreglan hefði þurft að grípa inn þegar örtröð myndaðist á bílastæðinu. Þá var vetrarfrí í flestum grunnskólum landsins og margir sóttu Akureyri heim til að skella sér á skíði. Við hringdum norður og töluðum við Guðríði Erlu Friðriksdóttur, sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar, og spurðum hana út í umgengina í fjallinu.

Væntanleg þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður um aðild Íslands að ESB var til umræðu á Alþingi í vikunni. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, sagði í umræðunum að ef hún væri við völd myndi hún leggja til þéttara samstarf með Evrópusambandinu og öðrum Evrópulöndum. Þá sagði Þórdís Kolbrún að hún myndi markvisst að reyna kæra Ísland inn í flest ef ekki allt sem Bretar og Norðmenn eru að gera saman og oft og tíðum með Kanada líka. Þetta er áhugaverð afstaða sem við fengum Þórdísi Kolbrúnu til að fræða okkur betur um.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,