12:42
Þetta helst
Þetta gerist næst í Bakkakotsmálinu

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Einn og hálfur mánuður er frá því að umfjöllun um Bakkakotsmálið var birt í fréttaskýringaþættinum Kveik. Þátturinn vakti mikla athygli og umtal næstu daga og vikur þar á eftir.

En hvað gerist svo? Hvað eru stjórnvöld að gera til að bregðast við þessu máli? Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðaði ferns konar aðgerðir til að bregðast við Bakkakotsmálinu í kjölfar þáttarins.

Samhliða er verið að leggja fram nýtt frumvarp til laga um barnavernd á Alþingi nú á vorþinginu. Efni frumvarpsins tengist því sem fjallað er um í Bakkakotsmálinu.

Rætt er við Pál Þórhallsson sem er lögfræðingur og skrifstofustjóri í ráðuneytinu sem hefur umsjón með viðbrögðum ráðuneytisins við Bakkakotsmálinu.

Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,