23:10
Menningarpúlsinn
Bíó og kammer: Club Kid og Paper Tiger á RIFF, Kammermúsíkklúbburinn 70 ára

Púlsinn tekinn á menningarlífi landsins í lok viku. Rætt um menningu í vikunni sem er að líða, það sem er efst á baugi þessa stundina og framundan um helgina.

Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir

Bíómenning og kammertónlist er til umræðu í þætti vikunnar, gestir þáttarins sáu kvikmyndirnar Paper Tiger (Pappírstígur) og Club Kid (Partípabbi) á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík (RIFF) og fóru á upphafstónleika Kammermússíkklúbbsins í vetur sem fagnar 70 ára starfsafmæli um þessar mundir.

Viðmælendur: Guðrún Elsa Bragadóttir kvikmyndafræðingur og lektor, Hafsteinn Gunnar Sigurðsson kvikmyndagerðarmaður og Tumi Torfason tónlistarmaður.

Umsjón: Pétur Eggertsson

Aðgengilegt til: Rennur ekki út
Lengd: 50 mín.
Leyft öllum aldurshópum
  • Endurflutt
,