12:38
Gamla kortérið
Gamla kortérið 4 - Ingibjörg Þorbergs í páfagarði

Illugi Jökulsson gramsar í safnakosti Ríkisútvarpsins.

Vorið 1963 fór söngkonan og dagskrárgerðarmaðurinn Ingibjörg Þorbergs í heimsókn í páfagarð. Hún sagði svo frá heimsókn sinni bæði í Vatíkanið sjálft, þar sem einn æðsti maður páfagarðs veitti henni sérstaka skoðunarferð vegna þess að hún væri Íslendingur, og frá því er hún var viðstödd ávarp hins fræga Jóhannesar páfa 23. á sumarleyfisdvalarstað hans.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 15 mín.
,